Samvinnurými á Skagaströnd hlaut 15 milljón króna styrk

Samningur undirritaður af Katrínu M. Guðjónsdóttur framkvæmdastjóra landshlutasamtakanna og Ólafi Þór Ólafssyni starfandi sveitarstjóra Skagastrandar. MYND AF VEF SSNV
Samningur undirritaður af Katrínu M. Guðjónsdóttur framkvæmdastjóra landshlutasamtakanna og Ólafi Þór Ólafssyni starfandi sveitarstjóra Skagastrandar. MYND AF VEF SSNV
SSNV og sveitarfélagið Skagaströnd hafa undirritað samning vegna 15 milljón króna styrks til að skapa samvinnurými á Skagaströnd. Í frétt á vef SSNV segir að markmiðið með verkefninu sé að skapa samvinnurými á Skagaströnd með því að standsetja og markaðssetja húsnæði í eigu sveitarfélagsins, skapa forsendur fyrir léttan iðnað í hluta hússins og aðstöðu fyrir frumkvöðla og minni fyrirtæki í öðrum hluta þess.
 

Fram kemur að húsið sem um ræðir hafi áður verið fiskvinnsluhús en síðast rækjuvinnsla. „Nú þegar hafa aðilar sýnt aðstöðunni áhuga til framleiðslu á fullbúnum timburhúsum til flutnings. Mun styrkurinn því vonandi verða til þess að störf skapast á Skagaströnd á næstu misserum og húsnæðið fái nýtt hlutverk,“ segir í fréttinni.

Innviðaráðherra auglýsti eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar vegna verkefna sem tengjast sértækum verkefnum sóknaráætlanasvæða. Styrkjunum er ætlað að efla byggðir landsins og var úthlutað til sjö landshlutasamtaka sveitarfélaga. SSNV sótti um fyrir hönd sveitarfélaga í landshlutanum og hlaut Norðurland vestra 40 milljónir króna í styrk til þriggja verkefna: FabLab smiðja og aðstaða til nýsköpunar og þróunar í Húnaþingi vestra sem Feykir hefur þegar sagt frá, tilraunagróðurhús í Húnabyggð auk samvinnurýmis á Skagaströnd sem hér segir frá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir