Sauðfjárbændaferð á Strandir
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
05.03.2014
kl. 09.40
Húnvetnskir sauðfjárbændur ætla að bregða undir sig betri fætinum og heimsækja Strandir annan laugardag. Ferðina munu þeir svo enda með kvöldverði á Gauksmýri í boði SAH afurða.
Farið verður af stað frá N1 á Blönduósi laugardaginn 15. mars kl. 10:00. Heimsóttir verða meðal annars bæirnir Broddanes, Bassastaðir, Smáhamrar og fleiri ræktunarkóngar. Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir að allir velunnarar íslensku sauðkindarinnar séu velkomnir.