Sauðfjárræktarfundir á næsta leiti
Líkt og undanfarin ár verður útgáfu Hrútaskrárinnar fylgt eftir með fundum um allt land, þar sem hrútakostur sæðingastöðvanna verður kynntur. Samkvæmt heimasíðu Bændasamtakana mun Eyjólfur Ingvi Bjarnason, ráðunautur BÍ, mæta á alla fundina auk sauðfjárræktarráðunauta á hverju svæði.
Á fundunum verður ýmsum viðbótarupplýsingum um hrútakostinn komið á framfæri, farið verður yfir framkvæmd sæðingastarfsins á hverju svæði auk almennrar umfjöllunar um ræktunarstarfið. Hér að neðan er að finna yfirlit yfir dag-, tíma- og staðsetningar fundanna á Norðurlandi vestra.
mánudaginn 19. nóvember
Staðarflöt, Hrútafirði kl. 20:30
þriðjudaginn 20. nóvember
Sjálfstæðissalnum, Blönduósi kl. 16:00
þriðjudaginn 20. nóvember
Reiðhöllinni Svaðastöðum, Sauðárkróki kl. 20:00