SEEDS samtökin leita að verkefnum
Á heimasíðu SSNV er vakin athygli á því að sjálfboðaliðasamtökin SEEDS leita að verkefnum. Samtökin hafa tekið á móti erlendum sjálfboðaliðum til þess að sinna fjölþættum verkefnum á sviði umhverfis-, menningar- og félagsmála. Samtökin skipuleggja vinnubúðir um allt land í samstarfi við einstaklinga, félagasamtök, stofnanir og sveitarfélög.
Nú átta árum frá stofnun hafa SEEDS og samstarfsaðilar víðs vegar um landið staðið fyrir á sjötta hundrað vinnubúða og tekið á móti yfir fimm þúsund sjálfboðaliðum, til lengri eða skemmri tíma, frá um 70 löndum. Vinnubúðirnar eru alla jafna tvær vikur með 8 - 15 sjálfboðaliðum í hverju verkefni.
Verkefnin sem sjálfboðaliðar á vegum SEEDS hafa tekið þátt í hafa verið mjög fjölbreytt. Mörg þeirra hafa falist í fegrun umhverfisins með hreinsun og gróðursetningu, önnur í bættu aðgengi fyrir ferðamenn með lagningu og viðhaldi göngustíga, svo eitthvað sé nefnt. Sjálfboðaliðar hafa einnig aðstoðað við undirbúning og framkvæmd ýmissa hátíða og menningarviðburða. Á sviði félagsmála hafa sjálfboðaliðar SEEDS m.a. aðstoðað Rauða krossinn við fjáröflun á aðventunni. Þá tóku hópar frá SEEDS þátt í hreinsunarstarfi eftir eldgosið í Eyjafjallajökli.
Samtökin eru alltaf á höttunum eftir nýjum verkefnum til að anna þeirri miklu eftirspurn, sem er eftir því að koma hingað til lands. Á heimasíðu SSNV eru þeir sem hyggja á verkefni á sviði umhverfis-, menningar- eða félagsmála og þurfa á starfskrafti að halda eindregið hvattir til að hafa samband við samtökin.