Selskap í Selasetri Íslands og Pottinum

Í júní var sýning á selaljósmyndum Péturs Jónssonar opnuð á tveimur stöðum á Norðurlandi vestra, í Selasetri Íslands á Hvammstanga og veitingahúsinu Pottinum á Blönduósi.

Sýningin ber nafnið Selskap og á henni eru sýndar einstakar myndir sem ljósmyndarinn tók af sel á Vatnsnesi þar sem hann sat fyrir og sýndi hin ólíklegustu skapbrigði eins og selum er einum lagið. Sýningin höfðar mjög til barna og vekur áhuga á selum og að kynnast þeim nánar í sínu náttúrulega umhverfi.

Sýningin mun standa út sumarið og er ætlunin að hún verði sett upp á fleiri stöðum á Norðurlandi vestra.

Ljósmyndasýningin er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.

/Norðanátt

Fleiri fréttir