Setja upp Dagbókina hans Dadda
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
24.02.2014
kl. 08.49
Leikfélag Blönduóss hefur hafið æfingar á leikverkinu Dagbókin hans Dadda eftir Sue Townsend í þýðingu Guðnýjar Halldórsdóttur. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson. Að sögn Guðmundar K. Ellertssonar eru um tuttugu hlutverk eru í leikritinu og er uppsetningin í ár í samstarfi við nemendur dreifnáms á Blönduósi.
Dagbókin hans Dadda kom út hjá Fjölva árið 1985 og var vinsæl unglingabók á þeim tíma. Nokkur leikfélög víðs vegar um land hafa sett leikverkið upp, m.a. í Mosfellsbæ og Öngulstaðahreppi. Áætlað er að frumsýna seinni partinn í mars.