Sex fengu styrk úr Þróunarsjóði BHS

Sex einstaklingar fengu styrk úr Þróunarsjóði Búnaðarsambands Húnaþings og Stranda sem úthlutaðir voru fyrir áramót og var það námsfólk af starfssvæði BHS sem er í landbúnaðartengdu námi sem nutu góðs af.

Þegar búnaðarsamböndin BSAH, BSVH,  BSS og Ráðunautaþjónustan sameinuðust í BHS í ársbyrjun 2007 voru settar 5,2 milljónir í sérstakan sjóð sem kallaður er Þróunarsjóður BHS. Á aðalfundi voru samþykktar reglur um úthlutun úr sjóðnum sem segja m.a. að úr sjóðnum megi veita framlög til nýsköpunar og þróunarverkefna í landbúnaði svo og styrkja nemendur í landbúnaðartengdu námi.

Stjórn sjóðsins er stjórn BHS á hverjum tíma og ákvað hún að styrkja nema af svæði BHS sem eru í landbúnaðartengdu námi veturinn 2010-2011. Einungis nemendur sem eiga lögheimili á svæði BHS og eru í fullu námi geta fengið styrk og fjarnám er ekki styrkhæft.

Í reglum um Þróunarsjóð BHS stendur að aðeins megi veita sem nemur ársvöxtum úr sjóðnum en ekki ganga á höfuðstólinn. Í ljósi þess hve innistæður á bankareikningum skiluðu lélegri ávöxtun s.l. ár ákvað stjórn BHS að túlka "landbúnaðartengt" nám mjög þröngt þetta árið og því var ekki hægt að verða við öllum óskum um stuðning, eftir því sem segir á heimasíðu sambandsins.

Eftirtaldir 6 nemar fengu 45 þús kr styrk hver:

  • Erla Rún Guðmundssdóttir, Bergsstöðum Svartárdal - er á öðru ári í Búfræðinámi við LBHÍ 
  • Guðni Ellertsson, Sauðá - er á öðru ári í Búfræðinámi við LBHÍ 
  • Katrín Sif Rúnarsdóttir, Neðra Vatnshorni - er á öðru ári í ferðamálafræðum við Háskólann á Hólum 
  • Leifur Georg Gunnarsson, Hvammstanga - er á öðru ári í hestafræðum á Hólum 
  • Sveinn Óli Friðriksson, Stóra-Ósi – er á fyrsta ári í Búfræðinámi við LBHÍ 
  • Rúnar Aðalbjörn Pétursson, Hólabæ - er á fyrsta ári í Búfræðinámi við LBHÍ

Fleiri fréttir