Sex ökumenn stöðvaðir undir áhrifum ávana- og fíkniefna sl. viku

Tveir gistu fangageymslur lögreglunnar á Norðurlandi vestra í nótt sem teknir voru með tæplega 80 grömm af meintum kannabisefnum í söluumbúðum. Voru þeir stöðvaðir við akstur og mældist kókaín og kannabis í þvagi ökumanns. Lögreglan naut aðstoðar fíkniefnahunds við leit en efnin voru vandlega falin í vélarými bifreiðarinnar.

Á Facebooksíðu embættisins kemur fram að fíkniefnahundur lögreglu, ásamt lögreglumönnum, hafi haft í nógu að snúast frá því um síðustu helgi en síðan þá hafa alls sex ökumenn verið stöðvaðir í akstri undir áhrifum ávana- og fíkniefna og mál er varða vörslu ávana- og fíkniefna voru fimm talsins. Þar voru einnig haldlögð meint kannabisefni ætluð til sölu og vógu þau ríflega 60 grömm. Þau efni komu til vegna nokkurra húsleita og leitum í ökutækjum.

Fíkniefnamálum í embættinu hefur fjölgað gríðarlega og er það verulegt áhyggjuefni, segir í færslu lögreglunnar sem minnir minnir enn og aftur á fíkniefnasímann 800-5005, sem er gjaldfrjálst símanúmer en þar er unnt að koma á framfæri ábendingum um fíkniefnamál.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir