Sex sóttu um embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust sex umsóknir um embætti skólameistara, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki.
Á vef stjórnaráðsins segir að mbættin voru auglýst laus til umsóknar hinn 28. apríl sl. með umsóknarfresti til og með 14. maí. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum. Skipað verður í embættið frá 1. ágúst næstkomandi.
Umsækjendur um embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra:
- Árni Gunnarsson
- Halla María Þórðardóttir
- Íris Helma Ómarsdóttir
- Kristján Bjarni Halldórsson
- Selma Barðdal Reynisdóttir
- Vera Sólveig Ólafsdóttir