Sex umsóknir um stöðu Hólarektors
Umsóknarfrestur um stöðu rektors við Háskólann á Hólum rann út þann 14. nóvember sl. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu bárust sex umsóknir um stöðuna, frá einni konu og fimm körlum. Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. ágúst nk., að fenginni umsögn hluteigandi skólanefndar
Umsækjendur eru:
- Arnar Sverrisson, sálfræðingur,
- Dr. Einar Árnason, prófessor í þróunar- og stofnerfðafræði,
- Dr. Erla Björk Örnólfsdóttir, forstöðumaður Varar - Sjávarrannsóknarseturs,
- Dr. Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur,
- Dr. Magnús Örn Stefánsson, erfðafræðingur og
- Sigurjón Haraldsson, viðskiptafræðingur.