Síðasta tækifæri að skrá sig á Samgönguþing MN

Í dag er síðasta tækifæri að skrá sig á Samgönguþing MN sem haldið verður í Hofi á morgun. „Við hvetjum alla til að nota tækifærið, hlusta á fróðleg erindi og taka þátt í umræðum,“ segir í fréttatilkynningu. Fundarstjóri er Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands. 

Aðgangur er ókeypis en allir þurfa að skrá sig. Dagskrá þingsins og skráningarform er að finna á heimasíðu Markaðsstofu Norðurlands

 

Dagskrá:

Setning samgönguþings

-  Höskuldur Þór Þórhallsson, formaður samgöngunefndar Alþingis

Þarfagreining á áningarstöðum Strætó á Norðurlandi fyrir ferðamenn

-  Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur hjá Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri

Strætó og ferðaþjónusta

-   Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs

 Hvernig nýtist strætó ferðamönnum?

-  Geir Gíslason, framkvæmdastjóri Akureyri Backpackers

Pallborðsumræður

Kaffihlé

Skemmtiferðaskip við Ísland

-    Edward H. Huijbens, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð ferðamála og prófessor við HA

Skemmtiferðaskip á Norðurlandi

-  Aníta Elefsen, rekstrarstjóri Síldarminjasafns Íslands

Farþegar af skemmtiferðaskipum, hverju skila þeir?

-   Yngvi Ragnar Kristjánsson, framkvæmdastjóri Sel-Hótel Mývatns

Álag á náttúruverndarsvæði og leiðir til að draga úr umhverfisáhrifum

-    Davíð Örvar Hansson, svæðislandvörður Umhverfisstofnunar á norðausturlandi

Pallborðsumræður

12:30 - 13:30  Hádegisverður í boði Isavia

Samgöngustofa og ferðaþjónusta

-   Þórólfur Árnason, forstjóri Samgöngustofu

Innanlandsflugvellir - hlutverk og stefna

-   Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri flugvallasviðs Isavia

Grundvöllur fyrir vetrarferðamennsku

-  Sævar Freyr Sigurðsson, eigandi Saga Travel 

Erlendir ferðamenn í innanlandsflugi

-   Ingi Þór Guðmundsson, sölu- og markaðsstjóri Flugfélags Íslands

Pallborðsumræður

15:00  Þingslit - Léttar veitingar í boði Eyþings

 

 

Fleiri fréttir