Síðasti opnunardagur Kaffi Bjarmaness í sumar
Kaffi Bjarmanes verður með kaffihlaðborð nk. laugardag, þann 25. ágúst, en þetta verður síðasti opnunardagur sumarsins. „Og vil ég þakka kærlega fyrir góðar móttökur,“ segir Áslaug Ott rekstaraðili kaffihússins á heimasíðu Skagastrandar.
Kaffihlaðborðið verður frá kl. 15 – 18 en aðeins verður opið á þessum tíma, á þessum degi, samkvæmt Skagastrond.is.
Kaffihlaðborðið kostar 1.500 krónur fyrir 14 ára og eldri, 1.000 krónur fyrir 7-13 ára og frítt fyrir 6 ára og yngri.