Síðsumarsýning kynbótahrossa í næstu viku

Síðsumarsýning kynbótahrossa á Sauðárkróki fer fram í næstu viku, dagana 19.-21. ágúst. Hefjast dóma klukkan 13 á miðvikudaginn. Fjöldi hrossa er skráður til sýningar og er búið að birta niðurröðun þeirra í holl á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins.

Á vefnum eru eigendur og sýnendur jafnframt hvattir til að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig.

Fleiri fréttir