Síðustu öruggu skiladagar fyrir jólin

Nú fer hver að verða síðastur að senda jólakortin til vina og vandamanna erlendis en í dag 10. desember er síðasti dagur A pósts til landa utan Evrópu, B pósts til Evrópu og TNT hraðsendingar til landa utan Evrópu.

Fyrir 12. desember þurfa pakkar til Evrópu að vera komnir inn á pósthúsið og 14. desember  B póstur innanlands, A póstur til Evrópu og pakkar til Norðurlanda. Loks þarf A póstur og pakkar innanlands ásamt TNT hraðsendingum til Evrópu að vera komnir í hús fyrir 19. desember .

Í Póstappinu (fyrir Android og iPhone) er að finna helstu upplýsingar varðandi staðsetningar pósthúsa og póstkassa. Þar má einnig finna upplýsingar um jólapósthús og opnunartíma pósthúsa fyrir jólin.

Einnig má finna helstu upplýsingar fyrir jólin á postur.is eða hjá þjónustuveri Póstsins í síma 580 1200.

Fleiri fréttir