Sigga Kling á konukvöldi

Nemendafélag Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra stendur fyrir konukvöldi á fimmtudaginn kemur. Fer það fram í hátíðarsal skólans. Verður þar mikið um dýrðir fyrir dömur á öllum aldri og veislustjóri verður engin önnur en hin vinsæla ofurdama Sigríður Klingenberg.

Boðið verður upp á óáfengan fordrykk og dömulegar veitingar. Til skemmtunar verða tónlistaratriði og happdrættismiðar verða seldir á staðnum. Kvöldið er opið öllum dömum frá 16 ára aldri (árgangur 1998) og verður húsið opnað kl. 20 en fjörið hefst kl 20:30.

Fleiri fréttir