Sigga Kling með skemmtun á Blönduósi
Sigga Kling verður í Félagsheimilinu á Blönduósi með skemmtun og fræðslukvöld þann 6. mars. Skemmtunin hefst klukkan 19:00. „Stórkostleg skemmtun með Siggu Klingenberg sem hefur slegið í gegn um allt land,“ segir í fréttatilkynningu.
Boðið verður upp á matarmikla Gúllassúpu og vínkynningu frá Ölgerðinni og er kvöldið bæði hugsað fyrir konur og karla. Miðaverð er 2.900 kr.