Siglufjarðarvegur lokaður vegna snjóflóðahættu

Á Norðurlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja  á vegum og snjókoma eða éljagangur nokkuð víða. Siglufjarðarvegur er lokaður milli Ketiláss og Siglufjarðar vegna snjóflóðahættu. Vestlæg átt 3-10 er á Ströndum og Norðurlandi vestra, hvassast og él A-til. Þurrt seint í kvöld. Frost 1 til 7 stig.

Gengur í suðaustan 13-20 með snjókomu seint á morgun. Hlýnandi veður í bili.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:

Hvöss suðvestanátt og él, en léttir til á NA- og A-landi. Frostlaust með S-ströndinni og á Austfjörðum, annars hiti í kringum frostmark.

Á föstudag:

Suðaustanstormur með slyddu eða rigningu, einkum S- og V-lands. Hiti 0 til 5 stig. Suðvestanstormur með kólnandi veðri og éljum síðdegis, einkum S- og V-til.

Á laugardag og sunnudag:

Suðvestan hvassviðri og jafnvel stormur með éljum, en úrkomulítið NA-lands. Frost víða 0 til 6 stig.

Á mánudag:

Útlit fyrir minnkandi suðvestlæga átt með éljum S- og V-lands, annars þurrt. Frostlaust við ströndina, en vægt frost inn til landsins.

Fleiri fréttir