Sigríður Klingenberg á Blönduósi á föstudag
Skemmti- og fræðslukvöld með Sigríði Klingenberg sem vera átti í síðustu viku en var frestað vegna veðurs og ófærðar, verður haldið föstudaginn 15. mars í Félagsheimilinu á Blönduósi. Skemmtunin hefst klukkan 19:30.
Boðið verður upp á osta-kynningu frá Osta- og Smjörsölunni og vínkynningu frá Ölgerðinni. Þetta er skemmtunar og fræðslukvöld sem hefur slegið í gegn um allt land, segir í tilkynningu frá aðstandendum kvöldsins sem hvetja fólk til að missa ekki af Siggu Klingenberg í þetta eina sinn á Blönduósi. Bæði fyrir konur og karla! Verð aðeins kr 1900-.