Sigurður Örn til PLAY

Sigurður Örn býr að mikilli reynslu í flugbransanum. MYND AF PLAY.COM
Sigurður Örn býr að mikilli reynslu í flugbransanum. MYND AF PLAY.COM
Flugfélagið PLAY hefur ráðið Sigurð Örn Ágústsson, frá Geitaskarði í Langadal, sem framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar. Fram kemur í fréttatilkynningu á netsíðu PLAY að um er að ræða nýtt svið innan flugfélagsins en Siggi mun hafa það hlutverk að leiða frekari þróun þvert á öll svið flugfélagsins.

„Hann á að baki langan feril í flugrekstri en hann var áður forstjóri og stjórnarformaður Bláfugls ásamt því að sitja í stjórn Avion Express. Hann átti einnig stóran þátt í samningaviðræðum og undirbúningi nokkurra stórra fyrirtækjakaupa fyrir Avia Solutions Group (ASG), þar með talið Avion Express, SmartLynx og Bláfugl.

„Það er virkilega spennandi að ganga til liðs við PLAY á þessum tíma. Félagið hefur vaxið hressilega síðustu ár, þar á meðal tvöfaldaði það tekjur sínar í fyrra og hefur á sama tíma náð að halda kostnaðargrunni sínum samkeppnishæfum. PLAY er því vel í stakk búið til að ná enn lengra á komandi misserum og árum og ég finn að eigendur og starfsfólk hafa mikinn metnað til þess. Ég hlakka virkilega til að taka þátt í því verkefni,” segir Sigurður Örn Ágústsson.

„Það er mikill happafengur að hafa fengið Sigurð Örn til liðs við okkur. Með honum fylgir dýrmæt þekking og reynsla úr flugbransanum sem ég er ekki í vafa um að eigi eftir að nýtast okkur vel. Við ætlum okkur stóra hluti og þessi nýi liðsstyrkur mun vafalaust hjálpa okkur á þeirri vegferð,” segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri PLAY,“ segir í tilkynningunni.

Siggi er með BA-gráðu í kennslufræðum frá Kennaraháskóla Íslands og MBA-gráðu frá Katz Graduate School of Business (University of Pittsburgh).

Þá má kannski geta þess í framhjáhlaupi að Siggi á að baki nokkurn knattspyrnuferil; lék fyrst með liði Tindastóls sumarið 1991 en síðan með Hvöt, HK, Deiglunni og lauk fótboltaferlinum 20 árum eftir sumarið með Stólunum þegar hann kom inn á í leik með liðinu Carl í Valitor-bikarnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir