Sigurvegarar Stullans í FeykirTV

Nemendur í kvikmyndagerð við FNV á Sauðarkróki gerðu það gott á „Stullanum“, stuttmyndasamkeppni sem fram fór á Akureyri um helgina en þeir áttu myndir í fyrsta og öðru sæti.

 

 

Í fyrsta sæti var myndin „Sleepy Horror“ eftir Blönduósingana Kolbein Guðmundsson og Martein Pálsson og Aðalheiði Sigurdórsdóttur frá Akranesi. Myndin byggir á handriti eftir Kolbein en hann leikstýrði henni einnig. Guðbrandur J. Guðbrandsson, Gubbi, þykir sýna stórleik í myndinni sem hægt er að sjá HÉR.

Í öðru sæti var myndin „Andlit á glugga“ eftir Bergþór Smára Pálmason undir leikstjórn Halldórs Ingólfssonar, en hún er stuttmynd sem flokkast undir thriller. Um myndina er sagt að Ester passar litlu systur sína eitt kvöld ásamt kærasta sínum Daníel. Kvöldið virðist fara vel og Alma litla hagar sér vel en…. Bergþór Smári er ættaður af Sauðárkróki en búsettur í Reykjavík og Halldór er frá Hólum í Hjaltadal.

Sjá má myndina HÉR.

 

Feykir - TV hitti sigurvegarana í Húsi Frítímans þar sem þau sýndu myndirnar sínar fyrir skagfirðinga og spjallaði við unga kvikmyndagerðarfólkið.

http://www.youtube.com/watch?v=o5l1dryFCl4&feature=youtu.be

Fleiri fréttir