Símaskránni dreift til íbúa á Norðvesturlandi

Ný símaskrá fyrir 2012/2013 kom út í gær og  geta íbúar á Norðvesturlandi nálgast hana í afgreiðslu Póstsins við Ártorg 6 á Sauðárkróki, Lækjargötu 2 á Hvammstanga, Hnjúkabyggð 32 á Blönduósi, Höfða á Skagaströnd.

Þá geta íbúar á austanverðum Tröllaskaga nálgast símaskrána á Aðalgötu 24 á Siglufirði, Hafnarbraut 26 á Dalvík, Aðalgötu 14 á Ólafsfirði og Norðurvegi 6-8 í Hrísey. Á sömu stöðum má einnig skila gömlum símaskrám til endurvinnslu.

Símaskráin í ár er helguð sviðslistum og tók Frú Vigdís Finnbogadóttir við fyrsta eintakinu af skránni við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í gær.

Fleiri fréttir