Sindri Sigurgeirsson kjörinn nýr formaður Bændasamtakanna
Sindri Sigurgeirsson, bóndi í Bakkakoti í Stafholtstungum var kjörinn nýr formaður Bændasamtaka Íslands sl. þriðjudag. Sindri þakkaði fyrir traustið og sagðist vona að honum tækist að haga störfum sínum þannig að þau yrðu til gæfu fyrir alla bændur á Íslandi.
Samkvæmt Bbl.is hlaut Sindri 31 atkvæði, en Guðbjörg Jónsdóttir bóndi á Læk í Flóa, sem bauð sig fram til formennsku skömmu áður en kosningin fór fram, hlaut 13 atkvæði. Tveir seðlar voru auðir og einn var ógildur.