Sjaldséð jarðaberjatungl á lofti í kvöld

Jarðaberjatungl við Grímsstaði á fjöllum/Ljósmynd Lára Hanna Einarsdóttir
Jarðaberjatungl við Grímsstaði á fjöllum/Ljósmynd Lára Hanna Einarsdóttir

Sumarsólstöður eru á Norðurhveli jarðar klukkan 22:34 í kvöld. Það þýðir að sólin kemst ekki hærra á loft hjá okkur og mun því fara lækkandi.

Það sem er sérstaklega merkilegt við þessar sumarsólstöður er sú staðreynd að í dag rís fullt tungl upp úr klukkan 23. Það, að fullt tungl rísi í sumarsólstöðum gerðist síðast 1967 og mun ekki sjást aftur fyrr en árið 2062.

Á Facebooksíðu Stjörnufræðivefsins segir að fullt tungl í júní séu venjulega kölluð jarðaberjatungl sökum þess að þau séu lágt á lofti í bleika Venusarbeltinu, rétt fyrir ofan skugga jarðar og því rauðleit og einstaklega falleg.

Þá er bara að vona að skýjaspá Veðurstofunnar rætist ekki fyrir Norðurland vestra og að íbúar svæðisins geti notið fegurðarinnar á himni upp úr klukkan 23 í kvöld.

Fleiri fréttir