Sjóðir sem frumkvöðlum stendur til boða að sækja í
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
06.05.2020
kl. 08.17
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV, hafa birt á vef sínum yfirlit yfir ýmsa sjóði sem standa frumkvöðlum til boða fyrir hin ýmsu verkefni. Í flestum þeirra er auglýst eftir umsóknum einu sinni á ári og fellur það yfirleitt á sama tímabili á hverju ári.
Þeim sem hafa hug á að sækja um styrki er boðið upp á að hafa samband við starfsmann SSNV sé óljóst hvar verkefnið fellur best. Listinn er ekki tæmandi en á honum eru taldir á fjórða tug sjóða sem sækja má í. Yfirlitið má nálgast hér.