Sjómannadagurinn á Skagaströnd

Á Skagaströnd taka menn forskot á sæluna og halda upp á sjómannadaginn á laugardaginn. Björgunarsveitin Strönd hefur veg og vanda af deginum eins og áður. Boðið verður upp á skrúðgöngu, Sjómannamessu, skemmtisiglingu, leiki, glens og gaman. Dagskráin endar svo á stórdansleik með Sigga Hlö.

Dagskrá sjómannadagsins á Skagaströnd laugardaginn 1. júní 2013:

10:30: Skrúðganga frá höfninni að Hólaneskirkju

Fjölmennum á skrúðgönguna til að viðhalda þessari skemmtilegu hefð.

11:00: Sjómannamessa í Hólaneskirkju

Kór sjómanna syngur við athöfnina. Að messu lokinni verður lagður blómakrans við minnismerki drukknaðra sjómanna til að heiðra minningu þeirra.

13:15: Skemmtisigling

Foreldrar hvattir til þess að fjölmenna með börn sín.

14:00: Skemmtun á Hafnarhúsplani

Skemmtun hefst á fallbyssuskoti. Kappróður og leikir á plani.

15:30: Kaffisala í Fellsborg

Rjúkandi heitt á könnunni og fjölbreytt bakkelsi.

23:00: Stórdansleikur í Fellsborg

Siggi Hlö sér um að allir skemmti sér í trylltum dansi.

Fleiri fréttir