Sjómannadagurinn á Skagaströnd

Sjómannadagurinn á Skagaströnd verður haldinn hátíðlega laugardaginn 31. maí næstkomandi.

10:30           Skrúðganga frá höfninni að Hólaneskirkju

-Fjölmennum á skrúðgönguna til að viðhalda þessari skemmtilegu hefð.

11:00          Sjómannamessa í Hólaneskirkju

-Kór sjómanna syngur við athöfnina.

-Að messu lokinni verður lagður blómakrans við minnismerki drukknaðra sjómanna til að heiðra minningu þeirra.

13:15          Skemmtisigling

-Foreldrar hvattir til þess að fjölmenna með börn sín.

14:00           Skemmtun á Hafnarhúsplani

-Skemmtun hefst á fallbyssuskoti.

-Kappróður og leikir á plani.

-Ljósmyndasýning á austurvegg Hafnarhússins.

-Vigdís Viggósdóttir með 12 mynda seríu sen nefnist Samruni

-Mótorhjólasýning. Glæsilegir mótorfákar í eigu heimamanna.

-Sjoppa á staðnum, gos,pylsur, ís og sælgæti.

15:30           Kaffisala í Fellsborg

-Rjúkandi heitt á könnunni og fjölbreytt bakkelsi.

- Hestamannafélagið Snarfari býður börnum upp á að fara á hestbak.

23:00           Stórdansleikur í Fellsborg

-Hljómsveitin Skandall sér um að allir skemmti sér í trylltum dansi.

-Allir að mæta og skemmta sér nú duglega.

Fleiri fréttir