Sjómannadagurinn á Skagaströnd
Það er alltaf mikið um dýrðir á sjómanndeginum á Skagaströnd. Verður honum fagnað á laugardaginn með skrúðgöngu, sjómannamessu, skemmtisiglingu, skemmtun á Hafnarhússpani. Þá verður kaffisala í Fellsborg og ljósmyndasýning í kjallara Bjarmaness. Deginum lýkur svo með stórdansleik þar sem Trukkarnir leika fyrir dansi. Björgunarsveitin Strönd sér um dagskrána.
Dagskráin er eftirfarandi:
10:30 Skrúðganga frá höfninni að Hólaneskirkju.
Er fólk hvatt til að fjölmenna í skrúðgönguna til að viðhalda hefðinni.
11:00 Sjómannamessa í Hólaneskirkju.
Kór sjómanna syngur undir stjórn Hugrúnar S. Hallgrímsdóttur. Ræðumaður Sigurjón Guðbjartsson. Að messu lokinni verður lagður blómakrans við minnismerki drukknaðra sjómanna til að heiðra minningu þeirra.
13:15 Skemmtisigling.
Foreldrar eru hvattir til að fjölmenna með börnin sín.
14:00 Skemmtun á Hafnarhúsplani.
Skemmtun hefst á fallbyssuskoti. Kappróður og leikir á plani. Sjoppa á staðnum, gos, pylsur og sælgæti.
15:30 Kaffisala í Fellsborg
Rjúkandi heitt á könnunni og fjölbreytt bakkelsi. Hestamannafélagið Snarfari býður börnin upp á að fara á hestbak.
16:00 Ljósmyndasýning
Vigdís Viggósdóttir sýnir ljósmynda og bókverk sitt Skepna. Þetta er útskriftarverk hennar úr Ljósmyndaskólanum. Sýningin verður í kjallara Bjarmarnes.
23:00 Stórdansleikur í Fellsborg.
Trukkarnir ætla að sjá um fjörið á stórdansleik í Fellsborg.
Allir að mæta og skemmta sér nú duglega.