Sjúkraflug liggur niðri af mannavöldum

Mynd: Facebook síða FMÍ.
Mynd: Facebook síða FMÍ.

Í gær sá Flugmálafélag Íslands sig knúið til að senda frá sér ályktun þar sem sú alvarlega staða kom upp að Reykjavíkurflugvöllur var með öllu ófær þann daginn. Engin sjúkraflugvél gat lent á vellinum þar sem búið er að loka þeirri flugbraut sem nýtist í stormi úr suðvestri og er í daglegu tali nefnd Neyðarbrautin. Brautin er þó enn á sínum stað og í góðu ástandi. Segir í ályktuninni að aðeins stjórnmálamenn standi í vegi fyrir lendingum á brautinni.

„Stjórn Flugmálafélag Íslands man ekki eftir jafn alvarlegri stöðu í flugsamgöngum innanlands og komið hefur fram í dag. Ljóst er að varnaðarorð flugstjóra og sérfræðinga í flugmálum áttu við full rök að styðjast og að stjórnmálamenn hafa gert alvarleg mistök með því að loka Neyðarbrautinni,“ segir í ályktuninni og hvatt er til skjótra aðgerða.

„Að opna Neyðarbrautina á ný kostar ríkissjóð ekkert og getur Alþingi tekið ákvörðun um það þegar í stað. Flugmálafélagið hvetur nýtt þing til þess að bregðast við tafarlaust áður en það verður um seinan og án þess að það hafi þá kostað mannslíf.“

Fleiri fréttir