Sjúkraþjálfarar samningslausir við ríkið
Því miður er sú staða komin upp að heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að virða ekki þann samning sem gengið var frá milli sjúkraþjálfara og Sjúkratrygginga Íslands þann 31. janúar sl.
Staðan er því sú að frá og með deginum í dag, 11. febrúar munu sjúkraþjálfarar ekki starfa lengur eftir neinum samningi við ríkið.
Þetta þýðir að allir sem nota þjónustu sjúkraþjálfara þurfa að greiða fullt komugjald í hvert sinn og sækja svo endurgreiðslur til SÍ þegar ráðherra setur um það reglur. Félag sjúkraþjálfara harmar þau óþægindi sem af þessu hlýst en vísar ábyrgð alfarið á heilbrigðisráðherra.
Félag sjúkraþjálfara vill benda á að í lögum um sjúkratryggingar (nr.112/2008) segir að tryggja eigi öllum sjúkratryggðum nauðsynlega sjúkraþjálfun og að ráðherra beri að setja reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði.
Félag sjúkraþjálfara harmar mjög að heilbrigðisyfirvöld setji skjólstæðinga sjúkraþjálfara í þessa stöðu og endurtökum hvatningu okkar til ykkar, samtaka og félaga, að ganga úr skugga um að SÍ og yfirvöld virði rétt félagsmanna ykkar til endurgreiðslu.