Skagafjörður gæti orðið sérlega illa úti

Tröllaskaginn mun ekki skýla Skagafirði fyrir veðrinu að þessu sinni. Mynd: KSE
Tröllaskaginn mun ekki skýla Skagafirði fyrir veðrinu að þessu sinni. Mynd: KSE

Í viðtali við Óla Þór Árnason, veðurfræðing á Veðurstofu Íslands í hádegisfréttum RÚV kom fram að veðurspáin, einkum í kvöld, væri einna verst fyrir Skagafjörð. Tröllaskaginn, sem gjarnan skýlir ákveðnum svæðum í héraðinu, gæti að þessu sinni virkað eins og magnari á veðrið.

„Um og eftir kvöldmat er megnið af landinu komið undir. Skagafjörðurinn kannski lítur einna verst út af þessum stöðum, fyrir utan suðurströndina. Þó svo að Tröllaskaginn geti nú veitt skjól í mörgum veðrum, þá getur hann líka næstum virkað eins og magnari í einmitt svona veðrum. Þar geta orðið mjög slæmir strengir í kvöld og því mjög varhugavert að vera á ferli eftir klukkan átta, níu í kvöld,“ sagði Óli Þór í viðtali í hádegisfréttum RÚV.

Eins og fram hefur komið hér á Feyki.is og öðrum fréttamiðlum ríkir nú óvissustig Almannavarna. Fólk hefur verið minnt á að hafa kerti, eldspýtur, vasaljós og útvörp sem ganga fyrir batteríum við höndina, sem og að hlaða síma, ef hringja þarf neyðarsímtöl. Vindstyrkurinn gæti orðið slíkur að t.d. tré geta rifnað upp með rótum og heyrúllur fokið af stað, en þess má geta að þær eru að jafnaði um 300-400 kíló.

Á Sauðárkróki voru foreldrar beðnir um að sækja leikskólabörn klukkan 15, ýmsum fundum, námskeiðum og öðrum viðburðum sem vera áttu seinnipart dags hefur verið aflýst. Þá var íþróttamiðstöðinni á Blönduósi lokað klukkan fjögur og svo er eflaust um fleiri fyrirtæki og stofnanir á svæðinu.

Uppfært kl. 19:20:

Lýst hefur verið yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Mið-Norðurlandi, norðanverðum Vestfjörðum og á Austurlandi. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra.

Fleiri fréttir