Skagastrandarhöfn auglýsir eftir hafnarverði

Skagastrandarhöfn hefur auglýst starf hafnarvarðar laust til umsóknar. Samkvæmt starfslýsingu felst í starfinu vigtun og skráning í aflaskráningarkerfi Fiskistofu, gerð reikninga fyrir höfnina, almenn hafnarvarsla, viðhaldsvinna, og tilfallandi störf, segir á heimasíðu sveitarfélagsins Skagastrandar.

Gerðar eru þær hæfniskröfur að viðkomandi þarf að búa yfir almennri tölvukunnáttu, skipstjórnarréttindi eru æskileg og löggilding sem vigtunarmaður er kostur.

Umsóknarfrestur er til og með 21. maí 2012 og verða laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.

Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar og hægt að sækja þau á vef sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar veitir: Magnús B. Jónsson í síma 455 2700 eða netfangið: magnus@skagastrond.is

 

Fleiri fréttir