Skagastrandarvegur opnaður á ný
Búið er að opna Veg 74 Skagastrandarveg, á milli Lækjardals og Mýrarvegar, samkvæmt tilkynningu sem Vegagerðin sendi frá sér um kl. 21 í kvöld. Vegfarendur eru þó beðnir að sína aðgát þar sem hraði er lækkaður niður í 50 km.
Ræsi fór í sundur á Skagastrandarvegi við bæinn Neðri-Lækjardal um síðustu helgi og var veginum var lokað í morgun, fram eftir degi, á meðan unnið var við viðgerðir.