Skagaströnd fékk rúmlega 41 milljón króna styrk vegna Spákonuhöfða

Fuglaskoðunarhúsið nýja á Spákonufellshöfða. MYND AF SKAGASTRÖND.IS
Fuglaskoðunarhúsið nýja á Spákonufellshöfða. MYND AF SKAGASTRÖND.IS

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, úthlutaði fyrir helgi úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2024. Tvö verkefni á Norðurlandi vestra hlutu styrki og annað þeirra var merkt Sveitarfélaginu Skagaströnd, styrkur að upphæð kr. 41.105.000 vegna verkefnisins Spákonufellshöfðu: Aðgengi fyrir alla.

Sveitarfélagið Skagaströnd fékk að þessu sinni úthlutað styrk að upphæð kr. 41.105.000 fyrir verkefnið Spákonufellshöfði: aðgengi fyrir alla

„Styrkirnir í ár fara til verkefna hringinn í kringum landið, stórra sem smárra, sem öll skipta máli. Uppbyggingin er í samræmi við nýja ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030 sem ég hef lagt fyrir Alþingi og er grundvölluð á heildarsýn fyrir hvern landshluta, meðal annars í gegnum áfangastaðaáætlanir heimamanna. Með þessum stuðningi erum við að stuðla að betri upplifun og aðgengi ferðamanna, auknu öryggi og verndun viðkvæmrar náttúru landsins. Þetta eru lykilatrið í sjálfbærni íslenskrar ferðaþjónustu sem er leiðarljós okkar,“ segir Lilja Dögg á vef Stjórnarráðsins.

Fram kemur í tilkynningu á vef Skagastrandar að sveitarfélagið þakki kærlega fyrir veittan styrk og áframhaldandi stuðning við verkefni sem stuðla að uppbyggingu ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir