Skagstrendingar greiða eftir rúmmáli fyrir losun á úrgangi

Á vef Skagastrandar eru upplýsingar um gjaldskrá Endurvinnslustöðvar og gámastæðis á staðnum en þeir sem koma með úrgang á gámastæðið greiða eftir rúmmáli fyrir losun á úrgangi í völdum flokkum. Flokkaður úrgangur sem fer til endurvinnslu er án gjalds fyrir alla og skal hann vera án aðskotahluta eða mengandi efna í samræmi við reglur um flokkun og móttöku úrgangs.

Úrgangsflokkur þarf að vera staðfestur af starfsmanni á gámastöð og er afgreiðslugjald á gjaldskyldum flokkum að lágmarki 1.000 kr. m. vsk. Sem dæmi um gjaldskyldan úrgang frá heimilum má nefna vörubretti, kassa og timbur ýmiskonar sem og margskonar úrgang frá framkvæmdum en ekki þarf að greiða fyrir húsgögn, blandaðan heimilisúrgang, garðaúrgang né brotajárn. Rekstraraðilar þurfa hins vegar að greiða fyrir allt sem þeir koma með fyrir utan brotajárn.

Sjá nánar HÉR

Þegar um stærri farma er að ræða, 5-10 m3, þarf að semja sérstaklega um móttöku þeirra en nánari upplýsingar um opnunartíma og fleira má nálgast HÉR.

Fleiri fréttir