Skákþingi Norðlendinga um helgina
Skákþing Norðlendinga fór fram í Safnahúsinu á Sauðárkróki um helgina og kepptu tuttugu skákmenn í opnum flokki. Tefldar voru sjö umferðir og fóru leikar þannig að sigurvegari varð stórmeistarinn og ellefufaldur Íslandsmeistari Hannes Hlífar Stefánsson sem hlaut 7 vinninga. Í öðru sæti varð Hafnfirðingurinn Þorvarður Fannar Ólafsson með 5 ½ vinning og jafnir í þriðja sæti urðu þeir Sverrir Örn Björnsson Hafnfirðingur og Stefán Bergsson frá Akureyri.
Stefán var sá eini af þessum mönnum sem er búsettur á Norðurlandi og hlaut hann því titilinn Skákmeistari Norðlendinga 2013. Til að hljóta titilinn varð Stefán að sigra Hannes Hlífar í síðustu umferð sem hann gerði og er hann vel að titlinum kominn. Stefán gerði sér síðan lítið fyrir og sigraði í Hraðskákmóti Norðlendinga, vann allar tólf viðureignirnar.
Sérstök aukaverðlaun hlaut Reykvíkingurinn Vigfús Vigfússon fyrir bestan árangur skákmanna undir 2000 skákstigum og Siglfirðingarnir Jakob Sigurðsson og Sigurður Ægisson, auk heimamannsins Jóns Arnljótssonar fengu verðlaun þeirra sem voru undir 1800 stigum.
Í upphafi mótsins var Haraldur Hermannsson heiðraður bæði af Skákfélagi Sauðárkróks og Skáksambandi Íslands fyrir áralangt starf að eflingu skáklistarinnar í Skagafirði en Haraldur er ný orðinn 90 ára og hefur um áratuga skeið verið í fararbroddi þeirra sem hafa haldið úti skákstarfi í héraðinu.
Hægt er að sjá myndir og úrslit í mótinu á heimasíðunni www.skakkrokur.blog.is