Skemmtileg sumarskemmtun á Blönduósi
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
26.04.2010
kl. 11.19
Sumarskemmtun Grunnskólans á Blönduósi var haldin á fyrsta degi sumars í Félagsheimilinu á Blönduósi. Nemendur í 1. – 7. bekk skemmtu þar fullum sal af fólki með söng og leik.
Nokkur frumsamin leikverk voru flutt og gömul og gróin lög flutt af mikilli innlifun. Að því loknu gátu gestir valið úr miklu úrvali af kökum á árlegum kökubasar ungmennafélagsins. Hægt er að sjá myndir af skemmtuninni HÉR
/Húni.is