Skemmtilegri Húnavöku lokið

Húnavöku, hátíð Austur-Húnvetninga lauk í gær með þjóðbúningasýningu í Heimilisiðnaðarsafninu og opnu húsi hjá Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi. Mikil og fjölbreytt dagskrá einkenndi hátíðina og veðrið lék við hátíðargesti þrátt fyrir slæma veðurspá.

Á laugardag stóð dagskrá yfir frá klukkan 10 um morguninn og fram á rauða nótt þar sem hljómsveitin Í svörtum fötum sló taktinn í Félagsheimilinu.

Á Facebooksíðu hátíðarinnar má nálgast myndir frá hátíðinni.

Fleiri fréttir