„Skemmtilegur dagur og mikið líf og fjör“
Afmælishátíð leikskólans Barnabóls á Skagaströnd var haldin hátíðleg sl. fimmtudag, þegar leikskólinn fagnaði 35 ára afmæli, og var bæjarbúum boðið að taka þátt í hátíðarhöldum leikskólans.
„Skemmtilegur dagur og mikið líf og fjör,“ segir á heimsíðu leikskólans. Skoppa og Skrítla sáu um að skemmta á hátíðinni og slógu þær aldeilis í gegn.
„Nemendur aðstoðuðu þær við leikrit og söng og eins og við kennararnir vitum eigum við fullt af hæfileikaríkum og upprennandi leikurum,“ segir á heimasíðunni og um leið er öllum góðum gestum sem komu þakkað fyrir komuna.
Myndir frá afmælishátíðinni má skoða á heimasíðu Barnabóls.