Skemmtun fyrir alla fjölskylduna á Skagganum

Bæjarhátíðin Skagginn á Skagaströnd fór vel af stað í gær og er fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Í dag hófst dagskráin með froðudiskói á Kaupfélagstúninu og björgunarsveitin Strönd sýnir bíla sína og búnað við Bjarnabúð og sjósund fór fram við Höfðann.

Víðavangshlaup Ungmennafélagsins Fram fer fram klukkan 12:00 við Höfðaskóla og er skráning á staðnum. Á sama tíma mun skógræktarfélagið Björk gróðursetja bjarkir í skjóli Spákonuhofs. Sveitamarkaður opnar í tjaldi við Árnes klukkan 13 og verður hann opinn til klukkan 18.

Frá klukkan 13:30 til 14:30 ætlar Linda, listamaður í Nesi, að byrja á mynd í Bjarmanesi, sem gestir geta tekið þátt í. Minigolfmót fer fram á svæðinu fyrir ofan Bjarmanes Café klukkan 13 og verða spilaðar sex holur. Verðlaun verða veitt fyrir 1. sæti. Þá verður boðið upp á „Holu í höggi“ á Hólanesi en þar verða kúlur slegnar á haf út til að hitta í fljótandi „holu“.

Söngvaborg, barna og fjölskylduskemmtun, fer fram á útisviði á Hólanesi frá klukkan 13 til 13:30. Þar ætla Sigga og María úr Söngvaborg að koma og skemmta. Subbi sjóræningi ætlar að koma með þeim skvísum og einnig verður leynigestur, einhver sem allir ættu að kannast við. Hoppukastali verður á Hólanesi frá klukkan 13:30 til 17 og Loftbolti á sparkvellinum frá klukkan 14 til 17.

Í dag verður Árnes, elsta húsið á Skagaströnd opið frá klukkan 13 til 17 og Spákonuhof verður opið frá klukkan 13 til 18.

Milli klukkan 14 og 17 fer fram kaffihlaðborð í Bjarmanes Café með gamaldags ívafi. Gestir munu geta notið flaututónlistar Sibylle frá Nesi listamiðstöð. Grímugerð og andlitsmálun verður á neðri hæð Bjarmaness. Verð á kaffihlaðborðið er 1.800 krónur, en 750 krónur fyrir 6-11 ára. Fimm ára og yngri fá frítt.

Frá klukkan 14 til 15 ætlar Snarfari að standa fyrir hópreið hestamanna og að hópreið lokinni verður teymt undir björnum á Hnappstaðatúni. Frá klukkan 15 til 18 verður opin vinnustofa í Nesi listamiðstöð en þar mun fara fram kennsla í gerð heimatilbúinna myndavéla en þessi viðburður er ætlaður 12 ára og eldri.

Fjöldasöngur við varðeld

Haldnir verða tónleikar á útisviði á Hólanesi frá klukkan 21 til 23 í kvöld. Þar munu ungir tónlistarmenn hefja skemmtunina og nokkrir eldri og reyndari munu einnig taka lagið, Guðmundur Egill, Gummi Jóns og fleiri. Dansatriði verða frá Cristine og Beate frá Nesi listamiðstöð. Milli klukkan 23 og 24 verður varðeldur á Hólanesi en þar verður kósí kvöldstemning og varðeldasöngvar sungnir með aðstoð valinna söngvara. Kvöldið endar svo með balli á Borginni þar sem hljómsveitin Trukkarnir munu sjá um að skemmta gestum fram undir morgun.

Á morgun sunnudag verður Brunch á Borginni frá klukkan 11:30 til 14. Klukkan 13 verður gengið á Spákonufell en lagt verður af stað frá golfvellinum og verður boðið upp á leiðsögn. Milli klukkan 13 og 17 verður Lummukaffi í Árnesi, elsta húsinu á Skagaströnd. Myndlistasýning og ljósmyndasýning verður opin í Bjarmanes Café frá 13 til 21. Spákonuhof verður opið frá 13 til 18.

Dagskrá hátíðarinnar má sjá hér.

Fleiri fréttir