Skemmtun með Siggu Kling frestað vegna veðurs

Skemmti- og fræðslukvöld með Sigríði Klingenberg sem átti að halda í Félagsheimilinu á Blönduósi í kvöld, miðvikudaginn 6. mars, hefur verið frestað vegna veðurs og ófærðar. Skemmtidagskráin hefur verið flutt fram í næstu viku, til fimmtudagsins 14. mars.

Samkvæmt fréttatilkynningu verður tímasetning auglýst nánar síðar.

Fleiri fréttir