Skíðavertíðinni lokið í Tindastóli
Skíðasvæði Tindasóls hefur nú verið lokað og allri starfsemi í fjallinu lokið þessa tímabils. Alls heimsóttu 4023 skíðamenn svæðið og renndu sér á skíðum í vetur og var það opið í 73 daga.
Þetta er nokkuð færri heimsóknir en var á síðasta tímabili en þá komu um 6600 gestir og segir Viggó Jónsson staðarhaldari í Stólnum, skýringuna vera þá að veður hafi oft verið leiðinlegt, rok og umhleypingasamt. Þá er Viggó óhress með þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að hafa tekið uppbyggingu vegarins að skíðasvæðinu út af vegaáætlun en lofað hafði verið að klæða veginn bundnu slitlagi árið 2008.
–Maður spyr sig á hvaða blaðsíðu þeir eru þar sem boðaðar hafa verið aðgerðir til bættrar aðstöðu á helstu ferðamannastöðum á landinu, en taka þessa framkvæmd út af vegaáætlun. Vegurinn er nánast ófær hingað uppeftir, segir Viggó og bendir á að skíðasvæðið er ferðamannaparadís utan hins venjulega ferðamannatíma og þjónar öllu Norðurlandi vestra. –Þetta er ekki bara fyrir Skagfirðinga heldur hafa Húnvetningar einnig sótt svæðið af miklum áhuga og myndugleik.
Sigurður Bjarni Rafnsson formaður skíðadeildar Tindastóls segir mikla aukningu hafa orðið hjá þeim sem æfa reglulega og nú sé stór hópur krakka á Andrésar Andar leikunum á Akureyri. –Það eru 43 krakkar frá okkur á Andrési, bæði Skagfirðingar og Húnvetningar og hefur gengið mjög vel. T.d. náði María Finnbogadóttir gullverðlaunum í stórsvigi 10 ára í gær. Í dag er svo annar keppnisdagur mótsins og mikil gleði og hamingja í hópnum, segir Sigurður. Uppskeruhátíð skíðadeildarinnar verður svo haldin í Varmahlíð þann 12. maí.