Skil með úrkomu og hlýnandi veðri fer yfir landið

Spáð er suðaustan 18-23 og slyddu með morgninum á Ströndum og Norðurlandi vestra, en mun hægari og snjókomu síðdegis. Frost 1 til 6 stig, en frostlaust um tíma á morgun. Í ábendingu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar kemur fram að skil með úrkomu og hlýnandi veðri fari norður yfir landið í dag.
Á fjallvegum verður hríðarveður, hvöss SA-átt og blint. Þegar leysir á láglendi verður staðbundið flughált og vatnselgur á götum í þéttbýli. Kólnar aftur síðdegis og frystir í kvöld.
Norðvestanlands eru hálkublettir á aðalleiðum en þæfingsfærð og skafrenningur er á Öxnadalsheiði.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Vestan og suðvestan 20-25 m/s og slydda eða éljagangur um morguninn, en 25-30 á annesjum N- og A-til. Suðvestan 13-20 og él síðdegis, hvassast NV-til, en léttir til A-lands. Kólnandi, frost 0 til 5 stig síðdegis.
Á miðvikudag:
Suðlæg átt, 8-13 m/s og víða él, en norðlægari síðdegis. Frost 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum.
Á fimmtudag:
Hæg breytileg átt og bjart með köflum, en vaxandi suðaustanátt síðdegis og fer að snjóa S- og V-lands um kvöldið. Fremur svalt veður.
Á föstudag:
Ákveðin austanátt með slyddu eða snjókomu, en síðar éljum. Hiti nálægt frostmarki.
Á laugardag og sunnudag:
Norðaustan átt og snjókoma eða él, en úrkomulítið SV-til.