Skipuleggjendur Gærunnar óska eftir sjálfboðaliðum
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
29.07.2013
kl. 22.22
Skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar Gærunnar óska eftir sjálfboðaliðum til að hjálpa við að setja upp tónleikastaðinn í vikunni fyrir hátíðina, 12. til 15. ágúst nk.
Einnig er óskað eftir sjálfboðaliðum til að aðstoða á meðan tónleikunum stendur. Armband á hátíðina fylgir með. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Laufeyju í síma 823-8087 eða Sillu í síma 660-4681. Einnig er hægt að hafa samband í gegnum facebook síðu Gærunnar.
/Fréttatilkynning
