Skjólstæðingar mæti með grímu á heilsugæsluna

Vegna fjölgunar smita í samfélaginu hafa skjólstæðingar sem mæta á heilsugæslur HSN verið beðnir um að vera með grímu við komu á heilsugæsluna og hafa hana á sér bæði í biðstofu og annarsstaðar innan stofnunarinnar.

„Ef þú ert með öndunarfæraeinkenni eða önnur einkenni sem gætu bent til Covid-19 er mikilvægt að hringja áður en komið er á heilsugæslu,“ segir á hsn.is en þeir sem leita til heilsugæslu eru hvattir til að koma án fylgdarmanns nema nauðsyn krefji og aðeins einn fylgdarmaður komi með barni.
Þá eru ættingjar sem heimsækja aðstandendur á hjúkrunar- og sjúkradeildum beðnir um að vera með grímu á leið sinni að og frá vistarveru íbúa/sjúklings.
„Virðum fjarlægðarmörk og hugum að eigin hreinlæti, handþvotti og sprittun.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir