Skólahald fellur niður á Skagaströnd
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
20.03.2014
kl. 08.30
Skólahald í Höfðaskóla og leikskólanum Barnabóli á Skagaströnd fellur niður vegna óveðurs í dag, fimmtudaginn 20. mars. Nú er mjög hvasst í bænum, samkvæmt Facebook síðu Björgunarsveitarinnar Strönd, þar er stöðugur vindur 25-27 m/s og hviður 40-45 m/s enn eins og er ekki mikil úrkoma.
„Viljum við því biðja fólk að fara varlega og leggja ekki í lengri ferðir nema mjög brýn þörf sé á,“ segir á síðu björgunarsveitarinnar.
Á heimasíðu Svf. Skagastrandar kemur fram að staðan verði tekin í hádeginu og metið hvort leikskólinn verði opnaður.