Skólastarfið af stað

Skólasetningar hafa verið í flestum grunnskólum á Norðurlandi vestra í dag. Höfðaskóli á Skagaströnd var settur í morgun og sömuleiðis Blönduskóli en Húnavallaskóli eftir hádegi í dag. Þá voru skólasetningar í öllum þremur starfstöðvum Grunnskólans austan Vatna í Skagafirði í dag. Þess má einnig geta að Skólabúðirnar á Reykjum tóku á móti fyrsta hópnum í dag.

Árskóli á Sauðárkróki verður settur á morgun, þriðjudag, en tímasetningar fyrir hvern bekk má sjá á heimasíðu skólans. Þá verður Varmahlíðarskóli settur á miðvikudaginn kl 16 en að venju fer skólasetning þar fram utan dyra. Loks verður Grunnskóli Húnaþings vestra settur í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga á fimmtudaginn kl. 12.

Fleiri fréttir