Skólinn opnar dyr
Í gær var haldin námskynning á Kaffi Krók á Sauðárkróki á vegum Vinnumálastofnunar þar sem kynntir voru möguleikar til að hefja nám haustið 2011 í framhaldsskólum og háskólum undir yfirskriftinni: Skólinn opnar dyr, en þar opnast nýir möguleikar fyrir atvinnuleitendur á því að hefja nám. Þeim sem uppfylla skilyrði gefst nú kostur á að stunda nám á haustönn án þess að greiða skólagjöld. Markmiðið er að veita 1000 umsækjendum aðgang að framhaldsskólum, frumgreinadeildum, háskólum og framhaldsfræðslu – með óskertum atvinnuleysisbótum í eina önn.
Fulltrúar Vinnumálastofnunar sögðu frá verkefninu sem er hluti af átakinu Nám er vinnandi vegur og byggir á tillögum frá samráðshópi ráðuneyta menntamála og velferðar, en einnig komu fulltrúar frá framhalds- og háskólum og kynntu námsframboð næsta skólaár.
Á kynningunni sagði Haukur Runólfsson frá reynslu sinni en hann dreif sig í nám í FNV eftir að hafa verið atvinnulaus í nokkurn tíma og hvatti hann alla til að nýta tækifærið sem nú gefst atvinnuleitendum og skrá sig í nám. Á kynningunni var einnig sýnd stuttmynd sem er afrakstur verkefnis sem unnið var í samstarfi Vinnumálastofnunar, Farskólans og Kvikmyndafjelagsins Skottu en þar fengu atvinnuleitendur færi á að vinna í kvikmyndasmiðju í tvo mánuði og vakti myndin hrifningu gesta.
Á heimasíðu menntamálaráðuneytisins segir að fjármögnun átaksins sé tryggð í samráði ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins í tengslum við gerð kjarasamninga en í heild verða framlög til menntamála með átakinu aukin um sjö milljarða króna næstu þrjú ár. Framhaldsskólinn verður efldur, atvinnuleitendum verður gefið tækifæri til að mennta sig, sérstakur þróunarsjóður stofnaður til að efla starfstengt nám og samstarf skóla og fyrirtækja um starfstengt nám verður aukið. Lög um LÍN og framfærslukerfi námsmanna verða endurskoðuð, skil framhaldsskóla og fullorðinsfræðslu verða gerð sveigjanlegri, námsráðgjöf efld og vinnustaðanámssjóður styrktur.
Með átakinu verður mun auðveldara en áður að komast að í framhaldsskóla eftir námshlé. Haustið 2011 munu skólarnir taka inn alla umsækjendur undir 25 ára aldri sem uppfylla skilyrði, ásamt eldri umsækjendum sem hafa lokið raunfærnimati vorið 2011.
-Við hjá Vinnumálastofnun erum ánægð með námskynninguna og hvetjum atvinnuleitendur til að nýta sér þessi tækifæri því reynslan hefur sýnt okkur að þeir sem nota tímann í atvinnuleysinu til að fara í nám bæta verulega stöðu sína og eiga greiðari leið inn á vinnumarkaðinn. Nánari upplýsingar um átakið er hægt að fá hjá okkur á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Norðurlandi vestra í síma 455 4200, segir Líney Árnadóttir forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Norðurlandi vestra.