Skráargatið þýðir hollari matvara
Skráargatið hefur verið innleitt á Íslandi en um er að ræða opinbert samnorrænt merki sem finna má á umbúðum matvara sem uppfylla ákveðin skilyrði varðandi innihald næringarefna. Skráargatið auðveldar hollara val og þar með að fara eftir opinberum ráðleggingum um mataræði, því matvörur sem bera merkið verða að uppfylla ákveðin skilyrði varðandi samsetningu næringarefna.
Minni og hollari fita, minni sykur, minna salt, meira af trefjum og heilkorni er það sem skráargatið á að tryggja í vörunni sem ber merkið.
Matvælaframleiðendum er frjálst að nota Skráargatið á sínar vörur, uppfylli þær ákveðin skilyrði varðandi innihald næringarefna. Auk þess að vera upplýsandi fyrir neytendur hvetur merkið matvælaframleiðendur til að þróa hollari matvörur og stuðlar þannig að auknu úrvali á hollum matvælum á markaði. Það verður hlutverk Matvælastofnunar og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga að fylgjast með að farið sé eftir reglum um notkun merkisins.
Nánari upplýsingar á Skráargatið.is