Skráning á Ís-landsmót á Svínavatni 3. mars

Um næstu helgi verður haldið Ís-landsmót á Svínavatni og er búið að opna fyrir skráningar en þær þurfa að berast á netfangið thytur1@gmail.com í síðasta lagi þriðjudaginn 28. febrúar. Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma.

Í skráningunni þarf að koma fram: Keppnisgrein, kennitala knapa, og IS númer hests. Keppnisgreinar eru:

A-flokkur, B-flokkur og tölt. Skráningargjald eru 3.000. kr. á skráningu. Greiðist inn á reikning 0307 - 13 - 110496, kt. 480269-7139 í síðasta lagi þriðjudaginn 28. febrúar. Sendið kvittun á neisti.net@simnet.is þar sem fram þarf að koma fyrir hvaða knapa og hest er verið að borga.

Ráslistar og aðrar upplýsingar verða birtar á heimasíðu mótsins þegar nær dregur.

Fleiri fréttir