Skráning til morguns á Svínavatn 2014
Mótið Svínavatn 2014, verður haldið laugardaginn 1. mars. Ísinn er afbragðs góður og vel lítur út með veður og færi. Vegleg peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki.
Skráningar berist á netfangið thytur1@gmail.com í síðasta lagi þriðjudaginn 25. febrúar. Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma. Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisgrein, kennitala knapa, og IS númer hests. Keppnisgreinar eru A-flokkur, B-flokkur og tölt. Skráningargjald eru 3.000 kr. á skráningu og greiðist það inn á reikning 0307 - 13 - 110496, kt. 480269-7139. Senda þarf kvittun á heneisti@gmail.com.
Ráslistar og aðrar upplýsingar verða birtar á heimasíðu mótsins þegar nær dregur.
Fréttatilkynning